Góð reynsla af einkarekstri fangelsa
Nú eru liðin tíu ár síðan tekin voru upp fjölbreytt rekstrarform á fangelsum í Bretlandi og samkeppni komið á þeirra á milli, þar sem sum eru áfram í opinberum rekstri á vegum ríkisvaldsins en önnur í einkarekstri. CBI, bresku samtök atvinnulífsins, hafa nú gefið út skýrslu þar sem lagt er mat á árangurinn.
Nýjungar, sveigjanlegra starfsfólk, aukin
skuldbinding...
Samkvæmt skýrslu CBI hefur verið sýnt fram á ýmsa kosti
einkarekinna fangelsa umfram þau ríkisreknu. Má þar
nefna:
-
betri hönnun,
-
meiri sveigjanleika starfsfólks,
-
meiri ábyrgðartilfinningu og aukna skuldbindingu stjórnenda,
-
gegnsærri og staðbundnari fjármálastjórnun,
-
hvatt er til nýbreytni á öllum stigum starfseminnar,
-
grannt er fylgst með framförum innanlands sem erlendis og vel heppnaðar nýjungar teknar upp,
-
heildstæðar endurhæfingaráætlanir fyrir fanga.
Jákvæð áhrif samkeppninnar á allt kerfið
Í skýrslunni segir Martin Narey, yfirmaður fangelsismála í breska
innanríkisráðuneytinu, reynsluna af þátttöku einkaaðila í rekstri
fangelsa vera mjög góða. Ekki einungis hafi verið sýnt fram á að
einkaaðilar geti rekið fangelsi sem séu meðal þeirra bestu í
landinu, heldur hafi tilkoma samkeppninnar haft mjög hvetjandi
áhrif til framþróunar í öllu kerfinu.
Betri þjónusta, lægri kostnaður...
Narey segir einkareknu fangelsin hafa sett háleit viðmið um
gagnkvæma virðingu fanga og starfsfólks sem sé bráðnauðsynlegt
heilbrigðum og öruggum fangelsum. Hann segir engan vafa leika á því
að samkeppni milli fangelsa, í opinberum rekstri og í einkarekstri,
hafi leitt til betri þjónustu og lægri kostnaðar, auk þess að vinna
gegn almennri andstöðu kerfisins við breytingar.