Fyrirtæki hyggjast draga úr fjárfestingum (2)
Nokkur samdráttur virðist framundan í fjárfestingum fyrirtækja. 31% fyrirtækja hyggst fjárfesta minna í ár en á síðasta ári, 47% hyggjast fjárfesta álíka mikið og 22% hyggjast fjárfesta meira en í fyrra. Þetta eru niðurstöður könnunar sem Samtök atvinnulífsins gerðu meðal aðildarfyrirtækja í janúar. Samkvæmt þessum tölum halda fyrirtækin ennþá almennt að sér höndum í fjárfestingum, sem kemur ef til vill á óvart miðað við það sem ætla mætti af helstu hagvaxtarspám undanfarinna mánaða. Þetta kemur þó ágætlega heim og saman við nýlega könnun SA á ráðningaráformum fyrirtækja, en samkvæmt henni er lítil hreyfing framundan á vinnumarkaði.

Fyrir ári síðan boðuðu fyrirtæki ívið meiri samdrátt en þau gera nú, en þá hugðust 38% fjárfesta minna en árið áður, 19% hugðust fjárfesta meira en 43% álíka mikið.
Mestur samdráttur í sjávarútvegi
Eftir horft er á einstakar atvinnugreinar eftir aðildarfélögum SA
kemur verulegur munur í ljós. Áberandi mestur samdráttur
fjárfestinga virðist framundan í sjávarútvegi, en þar hefur
fjárfesting verið mjög mikil undanfarin ár. Í útgerð (LÍÚ) boða 44%
fleiri fyrirtæki samdrátt en aukningu og 36% fyrirtækja gera slíkt
hið sama í fiskvinnslu (SF). Nokkur samdráttur virðist framundan
hjá rafverktökum (SART) og í iðnaði (SI), en jafnvægi virðist ríkja
milli ára í verslun og þjónustu (SVÞ) og í ferðaþjónustu (SAF).
Fjármálafyrirtækin (SFF) skera sig hins vegar úr, en einungis í
þeirri grein hyggjast fleiri fyrirtæki auka fjárfestingar sínar í
ár en minnka, 22% fjármálafyrirtækja. Ljóst er að mörg
fjármálafyrirtækjanna eru þarna að horfa til frekari landvinninga á
erlendri grundu. Ekki er hins vegar sýnilegur munur á
fjárfestingaráformum eftir stærð fyrirtækja eða starfssvæði.

Ekki skilaboð um upphæðir
Ekki er hægt að draga þá ályktun af þessum tölum að
heildarfjárfesting atvinnulífsins verði minni í ár en í fyrra.
Einstakar fjárfestingar geta skipt sköpum um þá tölu og til dæmis
er ljóst að fjárfestingar vegna stóriðjuframkvæmda verða meiri í ár
en í fyrra. Hins vegar sýna þessar tölur sem fyrr segir að almennt
halda fyrirtækin ennþá að sér höndum og að minna bólar á
títtnefndri uppsveiflu í efnahagslífinu en ætla mætti af helstu
hagvaxtarspám undanfarinna mánaða.
Um könnunina
Könnunin var gerð í janúar og var hún send til 793 fyrirtækja. Svör
bárust frá 494 þeirra, eða 62,3%.