Fyrirtæki hyggjast draga úr fjárfestingum
.
Helmingur fyrirtækja hyggst fjárfesta minna í ár en árið 2001, en um 17% hyggjast auka fjárfestingar sínar. Þriðjungur fyrirtækja ætlar að fjárfesta álíka mikið og árið á undan. Þetta eru niðurstöður skoðanakönnunar sem Samtök atvinnulífsins gerðu í kringum mánaðamótin febrúar/mars
(smellið á myndina)
Minni samdráttur á landsbyggðinni
Á höfuðborgarsvæðinu er algengara að fyrirtæki hyggist
draga úr fjárfestingum en á landsbyggðinni. Það kemur ekki á óvart,
því að uppsveiflan undanfarin ár hefur að miklu leyti verið bundin
við suðvesturhorn landsins.
(smellið á myndina)
Minnstur samdráttur í sjávarútvegi
Af einstökum atvinnugreinum er mest um að dregið sé úr
fjárfestingum í ferðaþjónustu (SAF), en einna minnstur virðist
samdrátturinn í sjávarútvegi (LÍÚ og SF). Afkoma hefur verið slæm í
ferðaþjónustu undanfarin ár. Hryðjuverkin í Bandaríkjunum í haust
gera það m.a. að verkum að menn fara varlega í fjárfestingar í
þessari atvinnugrein. Góð afkoma í sjávarútvegi vegna lágs gengis
krónunnar virðist aftur á móti vera meginskýringin á því að menn
hyggjast síður halda að sér höndum í fjárfestingum þar en í öðrum
atvinnugreinum.
Einstakar fjárfestingar geta skipt sköpum
Í haust var giskað á að fjárfestingar atvinnuveganna myndu
dragast saman um 10% árið 2001 (Þjóðhagsáætlun). Árin á undan
jukust fjárfestingarnar hins vegar miklu meira en önnur útgjöld
landsmanna. Frá 1995-2000 var aukningin um 160% að magni til,
samkvæmt hagtölum. Þess vegna mátti gera ráð fyrir að þær drægjust
hratt saman þegar um hægðist í efnahagslífinu. Þess má þó geta að
einstakar fjárfestingar geta skipt sköpum. Ef hafist verður handa
við Kárahnjúkavirkjun á árinu, eins og margt bendir til, gætu
fjárfestingar þeirra atvinnuvega í heild orðið meiri en árið á
undan, þó að önnur fyrirtæki haldi að sér höndum í
fjárfestingum.
Um þrettán hundruð aðildarfyrirtæki SA fengu spurningar í
netpósti. Svör bárust frá 334 og er svarhlutfall því um 25%.

