Furðulegur málflutningur heimilislækna
Ein furðulegasta uppákoman í fjölmiðlum síðustu daga eru viðbrögð heilsugæslulækna við þeim úrskurði kjaranefndar að vinna þeirra við útgáfu læknisvottorða teljist hluti af aðalstarfi þeirra og þeim sé því ekki heimilt að taka sérstaka þóknun fyrir þau umfram það sem kjaranefnd ákveður. Blasir við að læknunum hefur aldrei verið heimil þessi sjálftaka samhliða launum ákveðnum af kjaranefnd og að viðbrögð þeirra nú fela í sér brot á starfsskyldum.
Stjórn Félags íslenskra heimilislækna segir þetta hins vegar alvarlega kjaraskerðingu og segir marga heilsugæslulækna hafa ákveðið að vinna ekki vottorð til annarra en Tryggingastofnunar og vegna félagslegrar þjónustu.
Nýleg mál tveggja forstöðumanna
Hefur umfjöllun í fjölmiðlum um þetta mál verið nokkuð
einkennileg, en þar hefur fyrst og fremst bergmálað að útgáfa
læknisvottorða sé nú í uppnámi vegna þeirrar kjaraskerðingar sem
þeir læknar hafi orðið fyrir sem nú eigi í "kjaradeilu." Er
fróðlegt að bera þessa umfjöllun saman við umfjöllun fjölmiðla um
nýleg mál forstöðumanna Þjóðmenningarhúss og Þjóðskjalasafns. Þar
var um það að ræða að viðkomandi forstöðumenn, sem njóta
heildarkjara sem ákvörðuð eru af kjaranefnd, þáðu viðbótarlaun án
vitundar nefndarinnar og sem ekki var stofnað til með réttum
hætti. Öllum ber saman um að þeir hefðu átt að gera sér grein
fyrir að það væri ekki heimilt. Þegar heilsugæslulæknar eiga í hlut
virðast a.m.k. einhverjir telja að allt aðrar reglur eigi að
gilda.
Minnir á löngu horfna tíma
Það verður að teljast einkennilegt fyrirkomulag að opinberir
starfsmenn þiggi sérstakar greiðslur frá sjúklingum fyrir að sinna
starfi sínu fyrir hið opinbera.
Auðvitað þyrfti að vera sérstök lagaheimild fyrir slíku gjaldi, sem
rynni þá ekki beint í vasa tiltekinna starfsmanna heldur til
viðkomandi stofnana í formi þjónustugjalda. Þessar greiðslur beint
til heilsugæslulæknanna minna helst á löngu horfna tíma þegar
tilteknir embættismenn fengu prósentur af ríkistekjum. Alls kyns
þess háttar furðurlegheit viðgengust á sínum tíma við ýmis embætti,
þar sem starfsmenn innheimtu gjöld og þóknanir af almenningi í
eigin vasa, jafnvel utan við allt bókhald og skattskil. Munu
flestir hafa talið að slíkt væri aflagt. Dæmi heilsugæslulæknanna
hlýtur að gefa tilefni til að Ríkisendurskoðun og jafnvel
skattyfirvöld kanni hvernig þessi ólöglega framkvæmd snýr að
rekstri þessara stofnana.
Ari Edwald