Forsætisráðherra haldi ró sinni
Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, ræðst með fordæmalausum hætti á Samtök atvinnulífsins og eitt aðildarfélag þess á fundi Samfylkingarinnar í dag. Æskilegt er að æðstu ráðamenn þjóðarinnar haldi ró sinni og flytji mál sitt yfirvegað og uppbyggilega nú þegar fjallað er um stór mál sem varða vegferð þjóðarinnar næstu árin.
Árásir forsætisráðherra á Landssamband íslenskra útvegsmanna
eiga sér engar málefnalegar forsendur. Sjávarútvegsfyrirtæki
hafa starfað eftir lögum um stjórn fiskveiða sem voru mótuð í tíð
ríkisstjórna sem forsætisráðherra sat í og ber því mikla
ábyrgð á.
Löggjöfin um stjórn fiskveiða hefur löngum verið deiluefni en
endurskoðunarnefnd á vegum núverandi ríkisstjórnar náði víðtæku
samkomulagi um grundvallarbreytingu á stjórnkerfinu með aðild
stjórnarflokkanna, tveggja stærstu stjórnarandstöðuflokkanna og
allra helstu hagsmunasamtaka sjávarútvegsins bæði fyrirtækja og
starfsfólks.
Sáttin í endurskoðunarnefndinni varð um svokallaða samningaleið
þar sem byggir á því að nýtendur auðlindarinnar geri formlega
tímabundna samninga við ríkið um nýtingarréttinn. Í því felst
fullt forræði ríkisins á fiskistofnunum sem enginn deilir um að séu
eign þjóðarinnar. Helstu álitamálin sem þarf að útfæra snúa að
tímalengd og endurnýjunarákvæðum samninga, gjaldtöku og hversu hátt
hlutfall af heildarafla eigi að binda í samninga.
Niðurstaðan í þessum málum hefur verulega þýðingu og samtök
sjávarútvegsfyrirtækja hafa ítrekað óskað eftir að fá aðild að
frekara sáttastarfi í því skyni að útfæra samkomulagið í
endurskoðunarnefndinni. Ekki hefur verið orðið við þessum
óskum og heldur hefur öll meðferð málsins alið á tortryggni sem
forsætisráðherra viðheldur nú með ómaklegum árásum sínum.
Núverandi ríkisstjórn hefur einstakt tækifæri til þess að leiða
til lykta langtímasátt um stjórn fiskveiða. Það þarf
einstakan klaufaskap og hæfileikaleysi til forystu til þess að
klúðra málinu og forsætisráðherra er í offorsi sínu á slíkri
braut.
Samtök atvinnulífsins eru og hafa alltaf verið tilbúin til þess að
vinna með núverandi ríkisstjórn að því stóra hagsmunamáli allrar
þjóðarinnar að komast út úr því kreppuástandi hér ríkir og birtist
í bágum hag fyrirtækja og heimila og atvinnuleysi 14000
manns. Samtök atvinnulífsins hafa lagt fram tillögur við
viðsemjendur sína á vinnumarkaðnum og ríkisstjórnina um
atvinnuleið. Hún byggir á því að sækja fram með fjárfestingum
í atvinnulífinu, fyrst og fremst í útflutningsgreinum, skapa ný
störf í bráð og lengd, auka atvinnu og minnka atvinnuleysi,
jafnframt því að auka kaupmátt og treysta lífskjör til lengri
tíma. Óhugsandi er að fara atvinnuleið úr út kreppunni án þess
að sjávarútvegurinn, helsta útflutningsgreinin og ein meginstoð
samfélagsins, geti tekið fullan þátt í þeirri sókn.
Forsætisráðherra á ekki að hræðast viðfangsefnin eins og ræða
hennar á fundi Samfylkingarinnar ber með sér. Ísland þarf á
því að halda að forsætisráðherra þjóðarinnar, Jóhanna
Sigurðardóttir, taki ódeig þátt í því að leysa þau mál sem upp
koma, þar á meðal stjórn fiskveiða, í stað þess að úthrópa
atvinnulífið.
Tengt efni:
Umfjöllun fréttastofu RÚV 29. janúar - smellið til að hlusta