Formaður og framkvæmdastjóri SA á opnum fundum á Akureyri og Húsavík á morgun - 11. nóvember
Fundaröð Samtaka atvinnulífsins um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn heldur áfram á morgun, fimmtudaginn 11. nóvember. Á Akureyri hefst fundur SA kl. 8:30 á Hótel KEA en á Húsavík hefst fundur kl. 12 á Veitingahúsinu Sölku. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Á fundinum verður kynnt ný skoðanakönnun meðal félagsmanna Samtaka atvinnulífsins um horfurnar í atvinnulífinu á næstu mánuðum auk skoðana stjórenenda fyrirtækja á brýnustu úrlausnarefnum stjórnvalda við núverandi aðstæður.
Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins.
Fundirnir eru öllum opnir en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan:
Fimmtudaginn 11. nóvember á Akureyri
Hótel KEA kl. 8.30-10. Léttur morgunverður
Húsavík - fimmtudaginn 11. nóvember
Veitingahúsinu Sölku, kl. 12-14. Léttur hádegisverður.
Á föstudaginn efna SA til fundar á Reyðarfirði kl. 12, skráning á hann er hér að neðan:
Föstudaginn 12. nóvember á Reyðarfirði
Safnaðarheimilinu kl. 12-14. Léttur hádegisverður.