Flutningur á hættulegum varningi
Miðvikudaginn 29. ágúst kl. 15-17 verður haldinn fundur um flutning á hættulegum varningi í húsakynnum Samtaka atvinnulífsins í Garðastræti 41. Fundurinn er öllum opinn.
Á fundinum mun Gestur Guðjónsson hjá Olíudreifingu, sem er fulltrúi
atvinnurekenda í samstarfshópi á vegum dómsmálaráðuneytisins um
flutning á hættulegum varningi um jarðgöng, gera grein fyrir
eftirfarandi atriðum:
1. Núgildandi reglur um flutning á hættulegum efnum og öryggisráðgjafa.
2. Framkvæmd reglna um flutning á hættulegum efnum:
ökuréttindi, námskeiðahald, merking ökutækja, farmbréf.
3. Flutningur hættulegra efna um jarðgöng: starf samstarfshóps
á vegum dómsmálaráðuneytisins um flutning á hættulegum varningi um
jarðgöng.
4. Flutningur hættulegra efna um Hvalfjarðargöngin.
Viðbrögð flutningsaðila til að auka öryggi í göngum.
Umræður taka við að kynningu lokinni.