Fleiri málstofur um vinnutímastyttingu VR/LÍV

Vinnutímastytting samkvæmt kjarasamningum SA við VR og LÍV kemur til framkvæmda 1. janúar næstkomandi og er gert ráð fyrir að samkomulag verði gert á vinnustöðum um fyrirkomulag styttingar fyrir 1. desember. Samtök atvinnulífsins hafa í október boðið stjórnendum aðildarfyrirtækja sinna upp á málstofur þar sem farið er yfir góða framkvæmd vinnutímastyttingar. Vegna mikillar eftirspurnar hefur fleiri málstofum verið bætt við í nóvember.

Ýmsir valkostir eru við innleiðingu vinnutímastyttingar og mjög mikilvægt fyrir atvinnurekendur og launafólk að vel takist til.

Kynningarefni Samtaka atvinnulífsins er aðgengilegt á vinnumarkaðsvef SA.

Í málstofunum kynna valin fyrirtæki hugmyndir og áform um framkvæmdina og góður tími verður gefinn fyrir umræður.

Nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér á vef SA – smelltu á viðkomandi dagsetningu til að skrá þig.

Málstofurnar eru haldnar í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, og geta allt að 50 tekið þátt í hvert sinn.