Fjöldi starfandi aldrei jafn mikill
Starfandi fólki á íslenskum vinnumarkaði hefur ekki fjölgað jafn mikið frá hruni eins og á árinu sem er að líða. Þetta kemur fram í tölum Hagstofu Íslands sem Samtök atvinnulífsins tóku saman en fjallað er um málið í Morgunblaðinu í dag. Meðalfjöldi starfandi á árinu fyrir utan desember er 191. 036 og fjölgaði um 7.311 frá meðaltali ársins 2015. Fjöldi starfandi fólks á Íslandi hefur aldrei verið jafn mikill og á árinu 2016. Mestur var fjöldinn í júlí eða 197.900 og í nóvember 197.200.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá Vinnumálstofnun, rýnir í tölurnar í Morgunblaðinu í dag.
„Þetta er annars vegar vegna fjölgunar í ferðaþjónustu, sem er meiri en menn gerðu ráð fyrir og síðan er byggingariðnaðurinn farinn í gang, þar er orðin margra ára uppsöfnuð þörf fyrir framkvæmdir - almennt húsnæði, atvinnuhúsnæði, vegagerð og fleira,“ segir Karl og bendir á að það sé í fyrsta skipti í ár sem veruleg fjölgun sjáist í byggingariðnaði. Hann telur að fjölgun starfa haldi áfram á næsta ári og verði sambærileg því sem nú sést og ferðaþjónustan vaxi á svipuðum hraða á næsta ári.
Í tölum Hagstofunnar kemur fram að hlutfall starfandi af heildarmannfjölda 16-74 ára var árið 2016 81,1% og hefur ekki verið hærra síðan árið 2007 þegar hlutfallið var 81,4%.
- Samkvæmt tölum Hagstofu Íslands var fjöldi starfandi á árinu 2012 að meðaltali 169.275
- Meðalfjöldi starfandi á árinu 2013 var 174.942 sem var fjölgun um 5.667 frá árinu áður.
- Starfandi fólki á vinnumarkaði fjölgaði enn árið 2014 en þó ekki eins mikið og árið áður eða um 2.792 að meðaltali yfir árið.
- Meðalfjöldi starfandi árið 2015 var 183.725 og hafði fjölgað um 5.992 frá meðaltali ársins á undan.