Fimm formenn: Svona ætla þau að auka fjárfestingar
Samtök atvinnulífsins efndu til opins fundar í Hörpu fimmtudaginn 18. apríl þar sem formenn Bjartrar framtíðar, Framsóknarflokks, Samfylkingar, Sjálfstæðisflokks og Vinstri grænna sátu fyrir svörum í 90 mínútur um hvernig flokkanir ætla að örva atvinnulífið á næstu árum.
Í umræðunum kom fram að auka þurfi fjárfestingar á Íslandi og voru nefnd fjölmörg dæmi um hvernig það mætti gerast. Samkeppnishæft rekstrarumhverfi, afnám gjaldeyrishafta, hvati til nýsköpunar og pólitískur stöðugleiki hafi áhrif á vilja og getu til fjárfestinga. Umbóta sé þörf á þessum sviðum. Nýta þurfi orkuauðlindir landsins til hagsbóta fyrir landsmenn. Leggja þurfi áherslu á nýjar og skapandi greinar ásamt því að hvetja til nýsköpunar í rótgrónum fyrirtækjum.
Hægt er að horfa á umræður formannanna um fjárfestingar hér að neðan. Stutt myndskeið er í upphafi.
Árni Páll Árnason, Bjarni Benediktsson, Guðmundur Steingrímsson,
Katrín Jakobsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson tóku þátt í
umræðunum sem Orri Hauksson, framkvæmdastjóri SI stýrði fyrir
fullum sal.

Tengt efni: