Ferli vaxtalækkana
Seðlabankinn hefur ákveðið að lækka stýrivexti sína um hálft
prósent. Aukið atvinnuleysi, hækkandi gengi krónunnar og lækkandi
verðbólga eru meðal forsendna þess. Samtök atvinnulífsins fagna
þessari vaxtalækkun og telja allar forsendur fyrir frekari lækkun
vaxta á næstunni.