ESB auki samráð við aðila vinnumarkaðarins
Í framhaldi af leiðtogafundi ESB sem haldinn var í Lissabon fyrir tveimur árum síðan hefur framkvæmdastjórn sambandsins sent skýrslu um samráð á vinnumarkaði til ráðherraráðsins og Evrópuþingsins. Í skýrslunni sem kom út í júní sl. er lögð áhersla á aukið samráð um félags- og atvinnumál á sem flestum stigum. Framkvæmdastjórnin undirstrikar hlutverk vinnumarkaðarins í endurbótum á efnahags- og atvinnulífi innan ESB. Talið er mikilvægt að treysta tengslin á milli aðgerða á Evrópuvettvangi og innan einstakra aðildarríkja auk þess að koma niðurstöðum samráðsins almennt betur á framfæri.
Samráð fyrir leiðtogafundi ESB
Framkvæmdastjórnin leggur til að fyrir vorfundi leiðtoga ESB
(Lissabon ferillinn) verði haldinn sameiginlegur fundur
forystumanna Evrópusamtaka atvinnulífsins og launþega með forsetum
ráðherraráðsins og framkvæmda-stjórnarinnar. Slíkir fundir hafa
þegar verið haldnir, en þess má geta að Samtök atvinnulífsins og
Samtök iðnaðarins eiga aðild að Evrópusamtökum atvinnulífsins
(UNICE) og að ASÍ og BSRB eiga aðild að Evrópusamtökum launþega
(ETUC).
Samráðið stefni að löggjöf
Framkvæmdastjórnin leggur að Evrópusamtökum atvinnulífsins
og launþega að víkka út samráðið og láta það taka til fleiri
málaflokka en hreinna vinnumarkaðsmála. Þá hvetur hún til frekara
frumkvæðis með það fyrir augum að semja um fleiri þætti
Evrópulöggjafar í samráðinu. Því er beint til Evrópusamtakanna að
þau fjalli um jafnréttismál í breiðu samhengi, símenntun og
starfsþjálfun, þróun vinnumarkaðarins til nútímalegri starfshátta
og atvinnuþátttöku eldra fólks. Fram að þessu hefur einungis verið
fjallað um þessa málaflokka í óformlegu samráði. Framkvæmdastjórnin
er þess vegna að fara fram á að samráðið í þessum málaflokkum
stefni að löggjöf eða bindandi samningum í framtíðinn.
Aðlögun nýrra aðildarríkja
Framkvæmdastjórnin telur aðila vinnumarkaðarins best fallna til
þess að ná skynsamlegu jafnvægi á milli sveiganlegri vinnumarkaðar
og traustra félagslegra réttinda. Að sama skapi er bent á mikilvægt
hlutverk þessara aðila í nauðsynlegri aðlögun aðila
vinnumarkaðarins í nýjum aðildarríkjum að skipulagi hins evrópska
vinnumarkaðar. Leiðtogar ESB beindu því til Evrópusamtaka á
vinnumarkaði að þau skiluðu sameiginlegu áliti á mögulegu og
raunverulegu framlagi samráðsins á öllum stigum fyrir leiðtogafund
í desember nk.