Eru hugsjónir stjórnmálamanna hafin yfir lög?
Umhverfisráðherra getur sem alþingismaður unnið skoðunum sínum brautargengi á Alþingi með lagabreytingum eða þingsályktunartillögum, en ráðherra er ekki heimilt frekar en öðrum að brjóta lög í þágu skoðana sinna. "Eða eru hugsjónir og viðhorf stjórnmáalmanna hafin yfir lög og æðsta dómstól þjóðarinnar, Hæstarétt?" Þetta segir Helgi Magnússon, formaður Samtaka iðnaðarins, m.a. í grein í Morgunblaðinu um stjórnsýslu umhverfisráðherra.
Grein Helga birtist í Morgunblaðinu 16. febrúar en hann segir m.a. að Svandís Svavarsdóttir hafi ítrekað komið í veg fyrir atvinnuuppbyggingu með ólögmætum tafaleikjum til að hindra nýtingu orkuauðlinda og uppbyggingu iðnaðar á Íslandi.
Helgi undirstrikar að umhverfisráðherra er embættismaður sem beri að virða lög landsins, óháð stjórnmálaskoðunum sínum.