Er evran svarið?
Í tilefni af Evrópudeginum býður Fastanefnd framkvæmdastjórnar ESB gagnvart Íslandi og Noregi, í samstarfi við Euro Info skrifstofuna, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins, til morgunverðarfundar um evruna mánudaginn 8. maí n.k. undir yfirskriftinni: Er evran svarið? Hlutverk evrunnar í alþjóðavæðingunni. Aðalræðumaður á fundinum er Hervé Carré, aðstoðarframkvæmdastjóri stjórnarskrifstofu efnahagsmála hjá ESB og einn af hugmyndasmiðum evrunnar.
Fundurinn er haldinn mánudaginn 8. maí á Nordica Hótel kl. 8:15 - 10:00
Dagskrá:
8:15 - Skráning og morgunverður
8:30 - Percy Westerlund, sendiherra og yfirmaður fastanefndar ESB gagnvart Íslandi og Noregi: Opnunarávarp
8:35 - Hervé Carré, aðstoðarframkvæmdastjóri stjórnarskrifstofu efnahagsmála hjá ESB: "Addressing the opportunities and challenges of globalisation, what role for the euro?"
9:15 - Fyrirspurnir og umræður
10:00 - Fundarlok
Fundarstjóri er Jón Ásbergsson, framkvæmdastjóri Útflutningsráðs.
Fundurinn er öllum opinn en áhugasamir eru beðnir á skrá þátttöku í síma 511 4000 eða með tölvupósti, utflutningsrad@utflutningsrad.is