Ekki innistæða fyrir rúmlega 25% hækkun flugvallarstarfsmanna
Þorsteinn Víglundsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins,
segir í samtali við Fréttablaðið í dag enga efnislega innistæðu
fyrir kröfugerð flugvallarstarfsmanna. Þeir krefjist mun meiri
hækkunar en samið var um í desember á almenna markaðnum. "Það kemur
ekki til greina af okkar hálfu að hverfa frá þeirri línu sem var
mörkuð þá," segir hann.
Þorsteinn segir flugvallarstarfsmenn að meðaltali með um hálfa
milljón á mánuði. Þeir krefjist 25,6 prósenta hækkunar á
mánaðarlaunum, sem myndi þýða 120 til 130 þúsund króna hækkun á
mánaðarlaunum á samningstímanum. "Það er ekkert í launaþróun þessa
hóps á undanförnum misserum sem kallar á leiðréttingu. Kröfur
þeirra eru óásættanlegar."
Meðalheildarlaun allra þeirra hópa sem umræddir samningar flugvallarstarfsmanna ná til voru rúmlega 509 þúsund árið 2013 þar með talið sumarstarfsfólks. Orlofs- og desemberuppbætur eru ekki innifaldar í þeirri tölu.
Formaður Félags flugmálastarfsmanna ríkisins (FFR) hefur sagt heildarkostnað Isavia á samningstímanum aukast um 18% verði gengið að kröfum stéttarfélaga sem hlut eiga að máli. Þá er eingöngu horft til krafna félaganna um breytingar í launatöflum. Félögin hafa þar að auki gert ýmsar aðrar kröfur því til viðbótar sem myndu auka launakostnað Isavia um rúmlega 25% ef að þeim yrði gengið eins og bent hefur verið á hér á vef SA.
Þorsteinn segir í samtali við Fréttablaðið flugvallarstarfsmenn með góð laun miðað við menntun. Öryggisverðir þurfi til dæmis bara að hafa lokið tveggja vikna námskeiði hjá Isavia. Þá hafi öryggisverðir á flugvöllum fengið 18 prósenta hækkun 2011 á sama tíma og aðrir starfsmenn hafi fengið 11 prósent.
Tengt efni: