Ekki áhyggjur af stækkun EES og vinnumarkaðnum
Í samtali við Morgunblaðið um möguleg áhrif stækkunar EES á
íslenskan vinnumarkað segir Ari Edwald, framkvæmdastjóri Samtaka
atvinnulífsins, samtökin ekki telja að stækkunin þarnist neins
sérstaks undirbúnings að því leyti. "Ekki frekar en tilkoma
EES-samningsins á sínum tíma." Ari segist telja að það hafi verið
rétt afstaða á sínum tíma að Íslendingar áskildu sér ekki
aðlögunarfrest vegna stækkunarinnar. "Hitt er svo annað mál að ef
það koma upp einhver sérstök vandkvæði og ójafnvægi þá hafa
stjórnvöld rétt til að grípa til takmarkana samkvæmt samningnum,"
segir Ari.
"Við höfum ekki talið nein sérstök líkindi til þess að stækkunin
muni valda neinni holskeflu hér á vinnumarkaðinum. Það er alls ekki
sú reynsla sem við höfum af stækkun vinnumarkaðarins, hvorki
gagnvart Norðurlöndunum á sínum tíma, né EES. Eins og við munum var
töluverð umræða um þetta í aðdraganda að gildistöku EES-samningsins
og ýmsir óttuðust að hér myndi steypast yfir okkur fólk í
atvinnuleit frá Evrópu en reynslan leiddi annað í ljós. Ég geri ráð
fyrir að þetta verði svipað núna," segir Ari.