Eimskip fær ICEPRO bikarinn öðru sinni
Aðalfundur ICEPRO, nefndar um rafræn viðskipti var haldinn í dag föstudag á Hótel Sögu. Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra afhenti ICEPRO bikarinn, sem Eimskip hlaut í ár. Bikarinn er veittur því fyrirtæki sem þykir hafa skarað fram úr í rafrænum viðskiptum árið 2002. Er Eimskip eina fyrirtækið sem hefur hlotið þessa viðurkenningu tvisvar en Eimskip fékk ICEPRO bikarinn einnig árið 1999.
Á fundinum sagði Guðbjörg Björnsdóttir frá Staðlaráði
Íslands sagði frá verkefni SARIS, samráðs um rafrænt Ísland.
Fjallaði hún um verkefnið "Ísland sem tilraunasamfélag í
rafrænum viðskiptum." Verið er að vinna að því í samstarfi
við aðila í Evrópu að fá styrk frá ESB til að vinna að módeli á
þessu sviði. Hentar Ísland vel í þessu sambandi vegna smæðar
sinnar. Er hugmyndin sú að gera íslenskt samfélag, atvinnulíf
og stjórnsýslu að fyrirmynd annarra Evrópuþjóða að því er varðar
rafræn viðskipti og rafræn samskipti.