Desemberuppbót 2016 greiðist eigi síðar en 15. desember
Samkvæmt almennum kjarasamningum Samtaka atvinnulífsins greiðist desemberuppbót eigi síðar en 15. desember. Desemberuppbót fyrir fullt starf er nú kr. 82.000. Uppbótin greiðist hlutfallslega m.v. starfstíma og starfshlutfall en fullt ársstarf telst a.m.k. 45 unnar vikur fyrir utan orlof. Starfsmenn sem eru í starfi í fyrstu viku desember eiga ávallt rétt á uppbót, hlutfallslega m.v. starfstíma, en aðrir þurfa að hafa unnið a.m.k. 12 vikur á síðustu 12 mánuðum til að eiga rétt á uppbót.
Sjá nánar: