Brotthlaup úr starfi
Nokkur umræða hefur skapast í þjóðfélaginu um það þegar starfsmenn láta af störfum án þess að virða samningsbundinn uppsagnarfrest og án samþykkis atvinnurekanda. Slíkt ólögmætt brotthlaup getur valdið atvinnurekendum miklu fjárhagslegu tjóni.
Uppsagnarfrestur er gagnkvæmur
Í kjarasamningum eru ákvæði um uppsagnarfrest sem atvinnurekendum og starfsmönnum er skylt að virða. Starfsmanni er því skylt að vinna út uppsagnarfrest og atvinnurekanda að greiða starfsmanni laun út uppsagnarfrest nema aðilar komi sér saman um annað, til dæmis að starfsmaður fái að hætta störfum þegar nýr starfsmaður hefur verið ráðinn í hans stað.
„Bótakrafa atvinnurekanda getur numið fjárhæð sem svarar til launa á hálfum uppsagnarfresti.“
Starfsmaður sem neitar að virða uppsagnarfrest og gerist þannig sekur um ólögmætt brotthlaup úr starfi er skaðabótaskyldur gagnvart atvinnurekanda sínum.
Bótakrafa atvinnurekanda getur numið fjárhæð sem svarar til launa á hálfum uppsagnarfresti. Atvinnurekanda er heimilt að draga bótakröfu sína frá launum starfsmanns en rétt er þó að horfa til þess sem telja má sanngjarnt.
Þá þarf atvinnurekandi að krefja starfsmann um bætur án ástæðulauss dráttar með sannanlegum hætti. Það gerir hann með því að senda starfsmanni bréf eða skeyti þar sem fram kemur hvaða afleiðingar brotthlaupið muni hafa í för með sér.
Skaðabótaskyldan er þó ekki til staðar í þeim tilvikum sem vinnuveitandi hefur gerst sekur um alvarlegt brot gagnvart starfsmanni, til dæmis verulega vanefnd launa, hafi starfsmaður kvartað formlega og gefið atvinnurekanda nokkra daga frest til að bregðast við.
Sjá nánar um brotthlaup úr starfi hér á vinnumarkaðsvef Samtaka atvinnulífsins.