Breytingar á skattkerfinu
Einkennilegt hefur verið að fylgjast með umræðunni um skattamálin að undanförnu. Þannig hefur því m.a. verið haldið fram að skattar til "stórfyrirtækja" séu að lækka á meðan skattbyrði einstaklinga sé að aukast. Er engu líkara en margir málshefjendur hafi það að markmiði að villa um fyrir fólki, en þau villandi og áróðurskenndu útspil sem einkennt hafa umræðuna skýrast að vísu að mestu af þeim vinnubrögðum nokkurra þingmanna að heyja prófkjörsbaráttu sína úr þingsölum með aðstoð fjölmiðla.
Þá hefur ASÍ ítrekað fjallað um "hækkun tekjuskatta einstaklinga og hækkun tryggingagjalds" líkt og þar fari tvær hliðar á sama peningnum. Nú er það svo að það eru launagreiðendur, bæði svokölluð "stórfyrirtæki" og "smáfyrirtæki", sem greiða tryggingagjaldið, en ekki launþegar. Þá greiða t.d. öll hlutafélög sömu skattprósentu, án tillits til stærðar og því eru engin málefnaleg rök fyrir því að gera stærri fyrirtækin tortryggileg í umræðunni. Hækkun tryggingagjaldsins er að sönnu íþyngjandi fyrir fyrirtækin í landinu og vóg hún að nokkru á móti lækkunaráhrifum annarra skattbreytinga síðasta árs. Hins vegar ræður stærð fyrirtækja engu um það hve launakostnaður vegur þungt í rekstri þeirra. Þá ber að varast einfaldan samanburð á skattprósentum einstaklinga og fyrirtækja enda er gjaldaumhverfi fyrirtækja mun flóknara að samsetningu en það sem einstaklingar búa við.
Meiri lækkun hjá einstaklingum
Þær breytingar sem Alþingi gerði á skattaumhverfinu fyrir um ári
síðan sneru ekki bara að fyrirtækjum og í fjárhæðum talið fólu
breytingarnar raunar í sér meiri lækkun fyrir einstaklinga heldur
en fyrirtæki. Helstu breytingar voru helmings lækkun almenns
eignarskatts einstaklinga og lögaðila, lækkun tekjuskatts
fyrirtækja úr 30% í 18%, hækkun tryggingagjalds um 0,77% (síðar
breytt í 0,5% til að koma til móts við launahækkanir
desembersamkomulags við verkalýðshreyfinguna), afnám sérstaks
eignarskatts einstaklinga og lögaðila og lækkun stimpilgjalda.
Ýmislegt fleira mætti nefna, svo sem hækkun frítekju- og
fríeignamarka einstaklinga vegna sérstaks tekjuskatts og vegna
eignarskatts. Samkvæmt því frumvarpi sem lagt var fram um þessar
breytingar, voru brúttóáhrif skattabreytinganna á ríkissjóð þau, án
afleiddra áhrifa á framvindu efnahagsmála, að gjöld fyrirtækja
lækkuðu um 1.700 m.kr., en gjöld einstaklinga um 5.400 m.kr. Lækkun
stimpilgjalda var talin skiptast nokkuð jafnt. Aðalástæðan fyrir
hækkuðum tekjum ríkisins af tekjuskatti einstaklinga að undanförnu
er gríðarleg kaupmáttaraukning í þjóðfélaginu, sem ekki á sinn líka
í öðrum löndum. Það var því ekki að undra þótt Geir H. Haarde
fjármálaráðherra spyrði Jóhönnu Sigurðardóttur að því í þingsölum á
dögunum, hvort það væri verra að hafa 100 þúsund krónur í laun og
borga 11% skatt, en að hafa 70 þúsund krónur í laun og borga engan
skatt!
Skattabreytingin góð fyrir efnahagslífið
Í athugasemdum með skattafrumvarpinu var fjallað um þau veigamiklu
efnahagslegu áhrif sem vænst var af þessum aðgerðum, sem myndu m.a.
birtast í auknum fjárfestingum, aukinni atvinnu, aukinni
tekjumyndun og almennt auknum umsvifum í þjóðarbúskapnum. Nefnt var
að ætla mætti að þessar aðgerðir myndu leiða til bæði aukinna
fjárfestinga erlendra aðila hér á landi og koma í veg fyrir að
íslensk fyrirtæki flyttu starfsemi sína til útlanda. Þetta eru
göfug markmið og til þess fallin að efla hér atvinnulífið og
almenna velferð í landinu. Þessar breytingar hafa líka þegar haft
jákvæð áhrif á efnahagslífið. Má þar til dæmis nefna yfirlýsingar
Marels hf. um að skattabreytingin sé ástæða þess að fyrirtækið
flytji nú aukinn hluta starfsemi sinnar heim til Íslands.
Jákvæðar breytingar í það heila tekið
Samtök atvinnulífsins fögnuðu þessum skattabreytingum þegar þær
voru kynntar á síðasta ári, enda er samkeppnishæft skattaumhverfi
eitt helsta áherslumál samtakanna. Vissulega hefðu samtökin viljað
að gengið yrði lengra í t.d. afnámi stimpilgjalda og afnámi
eignarskatta á fyrirtæki, enda um nánast óþekkta skattheimtu að
ræða í öðrum löndum. Þá hljóðaði tillaga SA upp á að tekjuskattur
fyrirtækja yrði lækkaður í 15%. Loks var hækkun tryggingagjaldsins
að sjálfsögðu ekki fagnaðarefni. Það var hins vegar mat Samtaka
atvinnulífsins að í það heila tekið væru umræddar skattabreytingar
jákvætt útspil til eflingar íslensks atvinnulífs, sem aftur er
ófrávíkjanleg forsenda betri lífskjara í landinu.
Ari Edwald