Brettum upp ermar - gefum blóð
Samtök atvinnulífsins og Blóðbankinn hófu í dag sameiginlegt átak undir yfirskriftinni Brettum upp ermar - gefum blóð. Samstarf Blóðbankans og SA er liður í því að fjölga blóðgjöfum sem koma reglubundið í Blóðbankann. Það er mikilvægt fyrir Blóðbankann og blóðgjafa að þeir komist frá vinnu til að gefa blóð en SA hvetja atvinnurekendur til að auðvelda starfsfólki að gefa blóð á vinnutíma. Það tekur aðeins stutta stund og getur bjargað mannslífum.
Fyrirtækin Marel, Já og Rio Tinto Alcan á Íslandi styðja átak Blóðbankans og SA. Forstjórar fyrirtækjanna sýna gott fordæmi með því að hvetja starfsfólk sitt til blóðgjafar á vinnutíma.
Sveinn Guðmundsson, yfirlæknir Blóðbankans, og Vilhjálmur
Egilsson, framkvæmdastjóri SA, skrifuðu undir samstarfssamning um
átakið í Marel í dag. Viðstödd voru Margrét Oddsdóttir forstjóri
Já, Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, Sigsteinn
P. Grétarsson aðstoðarforstjóri Marel og Skúli Eggert Sigurz,
framkvæmdastjóri lögfræðistofunnar Lagastoðar. Hann lenti í
alvarlegu slysi fyrir nokkru og naut blóðgjafar í kjölfarið. Skúli
Eggert styður átakið.
Mynd: Óskar Páll Sveinsson
Að aflokinni undirskrift hófst söfnun blóðs meðal starfsmanna
Marel í Blóðbankabílnum sem mætti á staðinn en hann heimsækir
reglulega fyrirtæki þar sem blóðgjafar eru margir. Blóðbankinn þarf
að fá um um 2.000 nýja blóðgjafa á ári til að viðhalda
blóðgjafahópnum. Blóðgjafahópurinn er um 9.000 manns sem koma um
14.000 sinnum á ári Að meðaltali þarf Blóðbankinn því 70 blóðgjafa
alla opnunardaga.
Mynd: Óskar Páll Sveinsson
Blóðbankinn er staðsettur við Snorrabraut í Reykjavík og er með starfstöð á Akureyri auk þess sem Blóðbankabíllinn er á ferðinni um allt land. Nú er mögulegt að bóka tíma í blóðgjöf og mun Blóðbankinn í auknum mæli óska eftir að blóðgjafar geri það. Með því móti má stytta biðtíma og ná betra jafnvægi í innkomu blóðgjafa, lagerhaldi og mönnun.
Umfjöllun fjölmiðla:
Tengt efni:


