Björgólfur Jóhannsson nýr formaður SA
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, er nýr formaður Samtaka atvinnulífsins. Tilkynnt var um kjör Björgólfs á aðalfundi SA sem nú stendur yfir. Björgólfur hlaut 98,5% greiddra atkvæða og var þátttaka í rafrænni kosningu meðal aðildafyrirtækja SA góð. Björgólfur tekur við formennsku af Vilmundi Jósefssyni sem hefur verið formaður samtakanna frá árinu 2009 en hann ákvað að hætta sem formaður fyrir aðalfund SA 2013.
Björgólfur hefur
margháttaða reynslu úr atvinnulífi og félagsstarfi. Hann hefur
verið forstjóri Icelandair Group frá ársbyrjun 2008 en starfaði
áður einkum í sjávarútvegi. Hann var forstjóri Icelandic Group um
tveggja ára skeið frá 2006, starfaði sem framkvæmdastjóri
Síldarvinnslunnar frá 1999, formaður stjórnar LÍÚ á árunum
2003-2008, var framkvæmdastjóri nýsköpunar- og þróunarsviðs
Samherja frá 1996 og fjármálastjóri Útgerðarfélags Akureyringa frá
1992-1996.
Björgólfur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1983 og starfaði að námi loknu sem endurskoðandi.
Björgólfur mun slíta aðalfundi SA 2013 sem nú stendur yfir, en fundinum lýkur kl. 16.