Björgólfur Jóhannsson gefur kost á sér sem formaður Samtaka atvinnulífsins
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hefur ákveðið að gefa kost á sér í embætti formanns Samtaka atvinnulífsins en nýr formaður verður valinn í aðdraganda aðalfundar SA þann þann 6. mars næstkomandi með rafrænni kosningu.
Björgólfur hefur margháttaða reynslu úr atvinnulífi
og félagsstarfi. Hann hefur verið forstjóri Icelandair Group frá
ársbyrjun 2008 en starfaði áður einkum í sjávarútvegi. Hann var
forstjóri Icelandic Group um tveggja ára skeið frá 2006, starfaði
sem framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar frá 1999, formaður stjórnar
LÍÚ á árunum 2003-2008, var framkvæmdastjóri nýsköpunar- og
þróunarsviðs Samherja frá 1996 og fjármálastjóri Útgerðarfélags
Akureyringa frá 1992-1996.
Björgólfur útskrifaðist sem viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands árið 1983 og starfaði að námi loknu sem endurskoðandi.