Bil milli þrepa virðisaukaskatts verði minnkað

Efra þrep virðisaukaskatts (VSK) á Íslandi er næst hæst í heiminum og bilið á milli þess efra og neðra er hvergi meira. Það hvetur til undanskota og mismunar atvinnugreinum. Eðlilegt er stefna að minni mun með hækkun neðra þrepsins og lækkun þess efra. Langt er um liðið frá setningu laga um VSK og tími kominn til að ráðast í heildarendurskoðun á VSK-kerfinu með einföldun, jafnræði og skilvirkni að leiðarljósi.

Í nýútkomnu riti Samtaka atvinnulífsins, "Ræktun eða rányrkja?", eru stjórnvöld hvött til að minnka bilið milli þrepa í virðisaukaskatti í áföngum á næstu árum með hækkun lægra þrepsins og lækkun þess hærra.

VSK var tekinn upp hér á landi árið 1990 með einu skattþrepi, 24,5%, og skyldi hann vera almennur og skilvirkur. Sú stefna stóð ekki lengi því árið 1994 var tekið upp 14% þrep fyrir matvörur, gistiþjónustu, fjölmiðla, bækur og húshitun. Lægra þrepið var lækkað í 7% árið 2007 og hærra þrepið hækkað í 25,5% árið 2010. Í raun eru þrepin þrjú þar sem ekki er lagður VSK á fjórðung einkaneyslunnar.

VSK er mikilvægasti tekjustofn ríkissjóðs, skilar 30% skatttekna. VSK er ekki eins skaðlegur og flestir aðrir skattar þar sem hann hefur tiltölulega lítil áhrif á fjárfestingar og vinnuframboð og þar með verðmætasköpun. Ríkið þarf að rækta þennan skattstofn, hafa hann sem breiðastan, hlutfallið sem lægst og stuðla að stækkun hans. VSK hentar hins vegar afar illa til jöfnunar lífskjara.

Rannsóknir Hagstofunnar á útgjöldum heimila sýna að lægra VSK-þrepið hafi óveruleg áhrif til lífskjarajöfnunar. Hátekjuheimili verja þriðjungi hærri fjárhæð til kaupa á mat- og drykkjarvörum en lágtekjuheimili, þótt þau síðarnefndu verji heldur hærra hlutfalli tekna sinna til þessara þarfa. Stuðningur ríkisins við heimilin gegnum lægra þrep VSK er því þriðjungi meiri við hátekju- en lágtekjuheimili.

Í skattaskýrslu AGS um Ísland árið 2010 voru stjórnvöld hvött til þess að taka upp eitt VSK-þrep í áföngum af hagkvæmniástæðum og afnema ýmsar undanþágur.

Þótt óumdeilt sé að fleiri en eitt þrep í VSK mismuni atvinnugreinum, sé óskilvirkt og torveldi eftirlit, er staðreyndin sú að aðeins örfá ríki Evrópu hafa eitt skattþrep en flest eru með ýmist tvö eða þrjú þrep. Óhjákvæmilegt er að taka mið af þessu hér á landi. Íslensk verslun og ferðaþjónusta eru í samkeppni við fyrirtæki í þessum ríkjum og almannahagur að samkeppnisstaðan sé sem jöfnust.

Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA.

Greinin birtist í Fréttablaðinu 29. nóvember 2012 og á Vísi.

Tengt efni:

SMELLTU HÉR TIL AÐ SÆKJA RIT SA UM SKATTAMÁL ATVINNULÍFSINS (PDF)

Skattarit SA 2012 - forsíða