Betri heimur byrjar heima: Landsvirkjun
Fundaröðin Atvinnulíf og umhverfi hélt áfram í dag fimmtudaginn 23. janúar í Húsi atvinnulífsins. Fjallað var um innra kolefnisverð á tímum loftslagsbreytinga.
Jóna Bjarnadóttir, forstöðumaður umhverfis og auðlinda hjá Landsvirkjun og Daði Sverrisson, verkefnastjóri innra kolefnisverðs Landsvirkjunar, brutu málið til mergjar en fyrirlestur þeirra var sendur út í beinni útsendingu frá Húsi atvinnulífsins.
Boðið verður upp á fjölmarga snarpa fundi til næsta vors þar sem sagðar verða hvetjandi sögur af umhverfismálum fjölbreyttra fyrirtækja. Betri heimur byrjar heima er yfirskrift fundaraðarinnar 2019-2020.
Næsti fundur verður fimmtudaginn 20. febrúar en þá mun Sigga Heimis hönnuður fjalla um hönnun og sjálfbærni.