Beinir sjónum að íslenskri fyrirtækjaskattalöggjöf
Stjórnir Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins fjölluðu á dögunum um frumvarp til laga um heimild til samninga um álverksmiðju í Reyðarfirði, en samtökin styðja eindregið að frumvarpið verði að lögum. Í sameiginlegri umsögn samtakanna um frumvarpið er því fagnað að bygging álvers á Reyðarfirði og stórvirkjunar á Austurlandi séu að verða að veruleika og framkvæmdirnar m.a. sagðar verða lyftistöng fyrir atvinnulíf á landinu öllu og að þær muni stuðla að bættum hag landsmanna og fjölbreyttari samsetningu atvinnulífs.
Undanþágur frá skattalögum
Samtökin gera ekki efnislegar athugasemdir við að Alcoa
Incorporated, Fjarðarál sf., séu veittar mikilvægar undanþágur frá
íslenskum skattalögum til 20 ára. Eðlilegt sé að gerður sé
samningur við erlenda aðila sem hyggist festa mikla fjármuni hér á
landi til margra áratuga.
Eignarskattar, stimpilgjöld, vörugjöld
Í umsögninni benda samtökin hins vegar á að samningurinn beinir
sjónum að þeim ákvæðum íslenskrar fyrirtækjaskattalöggjafar sem
ekki tíðkast meðal þeirra ríkja sem við berum okkur saman við og
brýnt er að færð verði í svipað horf og annars staðar gildir. Þar
er fyrst og fremst um að ræða eignarskatta, vörugjöld og
stimpilgjöld. Eignarskattar á fyrirtæki þekkjast vart annars staðar
og vörugjöld á byggingarefni þekkjast hvergi. Einnig er minnt á að
enn hefur ekki komið fram frumvarp á yfirstandandi þingi um
breytingar á lögum um stimpilgjald einsog kynnt var sl. haust.
Loks er bent á að skattaleg ákvæði frumvarpsins eru hagstæðari en sérsamningar við starfandi fyrirtæki í orkufrekum iðnaði, en samtökin telja það óviðunandi stöðu að skattalegt ójafnræði ríki milli fyrirtækja í sömu atvinnugrein.