Bein erlend fjárfesting
Samtök atvinnulífsins efna til opins morgunfundar um beina
erlenda fjárfestingu fimmtudaginn 16. janúar kl. 8.30-10 á Hótel
Reykjavík Natura. Annar frummælenda er Karim Dahou,
framkvæmdastjóri skrifstofu fjárfestinga og atvinnulífs hjá
Efnahags- og framfarastofnuninni - OECD. Hann mun gera grein fyrir
stefnumörkun OECD á þessu sviði, hvernig henni hefur verið beitt og
hvaða árangri hún hefur skilað í aðildarríkjum OECD. 
Þá mun Frank Barry, prófessor í alþjóðaviðskiptum við Trinity háskólann í Dublin, segja frá reynslu Íra en hann hefur skrifað fjölda greina um beina erlenda fjárfestingu á Írlandi.
Í kjölfar erinda frummælenda mun fjölbreyttur hópur fólks ræða um efnið út frá íslenskum sjónarhóli, Ásdís Kristjánsdóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA; Friðrik Már Baldursson, prófessor; Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, forstjóri Actavis á Íslandi og Kristrún Heimisdóttir, framkvæmdastjóri SI.
Fundarstjóri er Birna Einarsdóttir, bankastjóri Íslandsbanka.