Aukin þjónusta hjá Kjararannsóknarnefnd
Í nýju rafrænu fréttabréfi kynnir Kjararannsóknarnefnd (KRN) til sögunnar nýtt launahugtak, regluleg laun, auk þess að veita upplýsingar um heildarlaun og vinnutíma. Þá birtir nefndin í fyrsta sinn meðallaun stjórnenda og þjónusta við notendur er aukin á vefsíðu nefndarinnar með aðgengilegum töflum (á excel-sniði) sem sýna meðallaun einstakra starfsgreina, eftir kyni og svæði.
0,1% kaupmáttaraukning
Samkvæmt niðurstöðum launakönnunar KRN fyrir 2. ársfjórðung 2002
höfðu regluleg laun að meðaltali hækkað um 5,6% frá 2. ársfjórðungi
2001. Á sama tíma hækkaði vísitala neysluverðs um 5,5% og samkvæmt
því jókst kaupmáttur launa að meðaltali um 0,1%. Launahækkun
starfsstétta var á bilinu 3,9% til 7,3%. Laun kvenna hækkuðu um
6,1% en karla um 5,2%. Laun á höfuðborgarsvæði hækkuðu um 5,4% en
laun utan höfuðborgarsvæðis um 6,2%.
Regluleg laun 179.000 að meðaltali
Kjararannsóknarnefnd kynnir sem fyrr segir nýtt launahugtak,
regluleg laun, en auk þess eru upplýsingar veittar um heildarlaun
og vinnutíma. Regluleg laun eru greidd laun fyrir umsaminn
vinnutíma skv. kjarasamningum, hvort sem um er að ræða dagvinnu eða
vaktavinnu. Regluleg laun eru umreiknuð til mánaðarlauna fyrir
fullt starf, hvort sem launamaður er í fullu starfi eða hlutastarfi
og fær greitt tímakaup eða mánaðarlaun. Að meðaltali fengu
launamenn greiddar kr. 179.000 í regluleg laun. Meðaltal
heildarlauna (öll laun fullvinnandi einstaklinga) var kr. 243.400
og meðalvinnutími 45,1 stund.