Aukin fjárfestingaráform fyrirtækja
Fleiri fyrirtæki hyggjast auka fjárfestingar sínar á árinu en á sama tíma í fyrra, samkvæmt könnun Samtaka atvinnulífsins meðal aðildarfyrirtækja. 27% fyrirtækja hyggjast fjárfesta meira í ár en á síðasta ári og sama hlutfall hyggst fjárfesta minna. 46% hyggjast fjárfesta álíka mikið og á síðasta ári. Í sambærilegri könnun fyrir ári síðan hugðust hins vegar 22% fjárfesta meira en árið áður en 31% hugðust fjárfesta minna. Könnunin í ár sýnir því talsverða aukningu fjárfestingaráforma miðað við sama tíma í fyrra. Þetta kemur ekki á óvart miðað við það sem ætla mætti af helstu hagvaxtarspám undanfarinna mánaða. Þá kemur þetta ágætlega heim og saman við nýlega könnun SA á ráðningaráformum fyrirtækja, en samkvæmt henni var þó nokkur fjölgun starfa framundan á vinnumarkaði.

Mikill samdráttur í sjávarútvegi
Ef horft er á einstakar atvinnugreinar eftir
aðildarfélögum SA er samdráttur fjárfestinga í sjávarútvegi mest
áberandi. Ef skoðaður er mismunur á hlutfalli þeirra sem hyggjast
auka fjárfestingar og minnka þær kemur í ljós að í fiskvinnslu
(SF) boða 43% fleiri fyrirtæki samdrátt en aukningu og 32%
fyrirtækja í útgerð (LÍÚ) gera slíkt hið sama. Þetta eru svipaðar
tölur og fyrir ári síðan en árin áður hafði veruleg fjárfesting átt
sér stað í sjávarútvegi. Ljóst er að hátt gengi krónunnar hefur
þarna mikið að segja. Gengið hefur einnig mjög slæm áhrif á
rekstrarskilyrði margra fyrirtækja í ferða- þjónustu en engu að
síður hyggjast 13% fleiri fyrirtæki innan hennar auka fjárfestingu
en minnka. Ljóst er að mörg fyrirtæki innan ferðaþjónustunnar sjá
fram á aukna veltu samfara miklum hagvexti, á meðan mörg þeirra sem
háð eru tekjum af erlendum ferðamönnum glíma við lækkandi tekjur í
krónum talið.

Mest breyting í verslun og
þjónustu
Ákveðið jafnvægi ríkir í fjárfestingaráformum iðnfyrirtækja (SI) og
rafverktaka (SART), en í báðum greinum virðist samdráttur í
fjárfestingaráformum fara minnkandi. Þá boða mun færri
fjármálafyrirtæki (SFF) aukningu í fjárfestingum en fyrir ári
síðan, eða 4% í stað 22% fyrir ári. Mest breyting virðist hins
vegar framundan í verslun og þjónustu (SVÞ), en þar hyggjast nú 21%
fleiri fyrirtæki auka fjárfestingu en minnka á meðan 2% fleiri
hugðust minnka hana fyrir ári síðan. Þarna er væntanlega fyrst og
fremst um að ræða mælingu á auknum umsvifum í atvinnulífinu
almennt, samfara miklum hagvexti.
Samdráttur á
landsbyggðinni
Talsverður munur er á svörum fyrirtækja eftir starfssvæði þeirra.
Fyrirtæki sem starfa á höfuðborgarsvæðinu eða landinu
öllu boða auknar fjárfestingar, 6-11% fleiri en boða samdrátt, en
fyrirtæki sem starfa á landsbyggðinni boða samdrátt, 13% fleiri en
boða aukningu.
|
Starfssvæði |
Munur á aukningu / samdrætti |
|
Höfuðborgarsvæðið |
+6% |
|
Landsbyggðin |
-13% |
|
Landið allt |
+11% |
Þarna er í rauninni um að ræða aðra mælingu á samdrætti í sjávarútvegi annars vegar, og á aukningu í verslun og þjónustu hins vegar. Ekki virðist hins vegar vera munur á svörum eftir stærð fyrirtækja í fjölda starfsfólks talið.
Ekki skilaboð um upphæðir
Ekki er hægt að draga beinar ályktanir af þessum tölum um
heildarfjárfestingu atvinnulífsins í krónum talið. Einstakar fjár-
festingar geta skipt sköpum og til dæmis er ljóst að fjárfest-
ingar vegna yfirstandandi stóriðjuframkvæmda verða mun meiri í
ár en í fyrra. Þá hafa nýlega átt sér stað gríðarlegar
fjárfestingar íslenskra fyrirtækja erlendis sem munu hafa veruleg
áhrif á heildarupphæð fjárfestinga íslensks atvinnulífs á þessu
ári. Hins vegar sýnir könnunin að fyrirtækin eru almennt að taka
við sér í fjárfestingum miðað við fyrri ár, sem kemur ekki á óvart
miðað við helstu hagvaxtarspár.
Um könnunina
Könnunin var gerð í janúar og var hún send til 853 fyrirtækja. Svör
bárust frá 515 þeirra, eða 60,4%.