Auka þarf tiltrú á atvinnulífið
Ályktun stjórnar Samtaka
atvinnulífsins
samþykkt á fundi 5. júlí 2001
Stjórn Samtaka atvinnulífsins lýsir áhyggjum af mikilli
gengislækkun krónunnar undanfarna mánuði, vaxandi
verðbólguþrýstingi af þeim sökum og versnandi afkomu fyrirtækja.
Ennfremur lýsa samtökin sérstökum áhyggjum af minnkandi tiltrú á
atvinnulífið og af þeim efnahagssamdrætti sem nú virðist hafinn.
Samtökin telja að þróun gengis og verðlags á næstu mánuðum skipti
sköpum um hvort þau markmið kjarasamninga á almennum vinnumarkaði
náist að hér takist að tryggja áfram efnahagslegan stöðugleika og
treysta lífskjör. Samtökin telja að allir sem haft geta áhrif á
framvinduna verði að gera sitt ítrasta til að stuðla að því að
þessi markmið náist. Þótt nokkur lækkun á gengi krónunnar frá
því sem það reis hæst á síðasta ári, einkum í ljósi mikils
viðskiptahalla, hafi átt rétt á sér telja samtökin að svo mikil
gengislækkun sem raun ber vitni eigi sér ekki
efnahagslegar forsendur.
Launakostnaður íslenskra fyrirtækja hefur vaxið mun hraðar en í nágrannalöndunum og jafnframt hraðar en framleiðni fyrirtækjanna. Launakostnaður sem hlutfall af rekstrarkostnaði fyrirtækja og hlutur launa í þjóðartekjum hefur vaxið hratt og leitt til versnandi afkomu fyrirtækja og verðbólguþrýstings. Þá hefur fjármagnskostnaður íslenskra fyrirtækja verið hár sökum hárra vaxta hér á landi og gengislækkun undanfarinna mánaða hefur haft alvarleg áhrif á afkomu þeirra fjölmörgu fyrirtækja sem skulda í erlendum gjaldmiðlum.
Hefja þarf ferli
vaxtalækkana
Til að bregðast við þessari stöðu hefur fjöldi
fyrirtækja gripið til aðhaldsaðgerða. Koma þarf í veg fyrir að
almennrar svartsýni taki að gæta í þjóðfélaginu um horfur í
efnahags- og atvinnumálum. Það sem mestu skiptir nú er að treysta
tiltrú á atvinnulífið og sporna gegn því að samdráttur verði of
mikill. Samtökin leggja því áherslu á mikilvægi þess að hafist
verði handa við lækkun vaxta til mótvægis. Það er trú samtakanna að
lækkun vaxta á næstunni muni ekki ýta undir verðbólgu, því
hún stafar einkum af gengislækkun undanfarinna mánaða en ekki af
eftirspurnarþrýstingi. Meginviðfangsefni
peningamálastefnunnar er ekki að draga úr ofþenslu síðustu missera
heldur að fást við samdrátt í atvinnulífinu. Lækkun vaxta á
ekki að þurfa að tefla verðbólgumarkmiðum Seðlabankans í
tvísýnu.
Lækka þarf skattbyrði
atvinnulífsins
Ennfremur leggja Samtök atvinnulífsins áherslu á
mikilvægi skattalækkana fyrir atvinnulífið og ítreka fyrri tillögur
sínar um lækkun tekjuskattshlutfallsins í 15%, afnám eignarskatts
og afnám stimpilgjalda. Samtökin fagna yfirlýsingum ráðamanna um
fyrirætlanir í þeim efnum, en árétta mikilvægi þess að ráðist verði
í slíkar breytingar strax í haust. Áhrif slíkra skattalækkana skila
sér ekki strax því fyrirtækin þurfa umþóttunartíma til að breyta
fjárfestingaráformum sínum, en taki slíkar breytingar gildi í
ársbyrjun 2002 munu þær hafa mikilvæg mótvægisáhrif á þá þróun til
niðursveiflu sem nú er hafin.
Hraða ber einkavæðingu
Samtök atvinnulífsins telja nauðsynlegt að
einkavæðingu opinberra fyrirtækja verði hraðað, og fagna
fyrirhugaðri sölu á þriðjungi hlutabréfa í Landsbanka Íslands.
Víðtæk einkavæðing fjarskipta-, fjármála- og orkufyrirtækja þjónar
þeim tilgangi að efla erlenda fjárfestingu og skapa ný og hagstæð
fjárfestingartækifæri fyrir lífeyrissjóði og aðra innlenda
fjárfesta. Með því má jafnframt draga úr halla á fjármagnsjöfnuði
þjóðarbúsins og þrýstingi á gengi krónunnar. Einkavæðing gegnir
ennfremur því hlutverki að auka samkeppni og framleiðni í
efnahagslífinu og renna þannig styrkari stoðum undir batnandi
lífskjör.
Loks telja Samtök atvinnulífsins
bráðnauðsynlegt að allir sýni ítrasta aðhald í verðlagsmálum. Þetta
á við um verðhækkanir einkafyrirtækja í samkeppni, en ekki síður
gjaldskrárhækkanir opinberra aðila, sem ekki búa við aðhald
markaðarins