Auðveldari leið fyrir fyrirtæki til að sækja um styrki til starfsmenntunar
Áttin - ný vefgátt sem auðveldar fyrirtækjum að sækja um styrki til starfsmenntasjóða ogfræðslustofnana verður opnuð í nóvember. Áttin er sameiginlegt verkefni atvinnurekenda og launafólks á almennum vinnumarkaði.
Fyrirtæki innan Samtaka atvinnulífsins hafa lengi óskað eftir einfaldara kerfi til að sækja um styrki til starfsmenntunar. Fyrirtæki þar sem starfsmannahópurinn er fjölbreyttur og greitt er af í mismunandi stéttarfélög, hafa hingað til þurft að sækja til margra sjóða og fræðslustofnana um styrki. Héðan í frá eiga þau að geta sótt um styrki fyrir nær allt sitt fólk með aðeins einni umsókn.
Áttin var kynnt á fjölmennum fundi stjórnenda í Húsi atvinnulífsins í vikunni en hún verður jafnframt kynnt á fundum um land allt í nóvember. Fundirnir eru liður í kynningarátaki SA og ASÍ um sjóðina og þjónustu þeirra við atvinnulífið en óhætt er að segja að Áttin hafi hlotið glimrandi móttökur meðal stjórnenda sem lögðu leið sína á fyrsta kynningarfundinn.
Í Áttinni hægt að sækja um styrki til eftirfarandi aðila, Starfsafls, Landsmenntar, Starfsmenntasjóðs verslunar- og skrifstofufólks, Starfsmenntasjóðs verslunarinnar, Rafiðnaðarskólans, IÐUNNAR fræðsluseturs og Menntasjóðs Verkstjórasambandsins. Ætla má að sjóðirnir nái til um 75-80% starfsmanna á almennum vinnumarkaði eða um 110-120 þúsund manns.
Fyrirtæki greiða sérstakt starfsmenntaiðgjald í starfsmenntasjóði af launum starfsfólks en hægt er að sækja um lækkun gjaldsins vegna eigin fræðslustarfs. Einnig geta fyrirtæki sótt um að fá fræðslustjóra að láni inn í fyrirtækið.
Stjórnendur fyrirtækja og mannauðsstjórar eru hvattir til að kynna sér Áttina (www.attin.is) og senda ábendingar til Sveins Aðalsteinssonar verkefnisstjóra Áttinnar (sveinn@attin.is) ef þeir telja að eitthvað megi betur fara. Ennfremur er velkomið að hafa samband til að fá fá Svein í heimsókn til að kynna Áttina.
Áttin er í lokaþróun og hefur ekki opnað formlega en hægt er að skoða vefinn eins og hann er í dag og grunnvirkni hans. Gert er ráð fyrir að Áttin opni í byrjun nóvember og þá verður hægt að senda inn styrkbeiðnir. Hægt er óska eftir styrk vegna fræðslustarfs allt að 12 mánuði aftur í tímann.