Atvinnulífið veitir 200 milljónum til HR
Samtök atvinnulífsins (SA), Samtök iðnaðarins (SI) og Sjálfseignarstofnun Viðskiptaráðs Íslands um viðskiptamenntun (SVÍV) hafa tekið höndum saman um að styðja við og efla háskólastarf á Íslandi með 200 milljón króna framlagi til Háskólans í Reykjavík. Þetta kom fram í ávarpi dr. Ara Kristins Jónssonar, rektors Háskólans í Reykjavík, við útskriftarathöfn HR sem haldin var í Hörpu þann 18. júní. SA, SI og SVÍV eru bakhjarlar HR.
Í ræðu sinni sagði Ari framlagið mikilvæga lyftistöng fyrir Háskólann í Reykjavík en um leið marki það fyrsta skrefið í þá átt að halda áfram öflugri uppbyggingu skólans. "Með þessu framlagi er atvinnulíf landsins að sýna í verki að fjárfesting í háskólamenntun er fjárfesting í framtíð atvinnulífs og samfélags."
Ari Kristinn undirstrikaði mikilvægi öflugs háskólastarf fyrir íslenskt samfélag og sagði það spila lykilhlutverk í samkeppnishæfni atvinnulífs. Það ætti bæði við um menntun starfsfólks sem og rannsóknir til nýsköpunar.
"Staðreyndin er því miður sú að þó miklar framfarir hafi orðið á undanförnum árum, þá teljumst við enn ekki vel menntuð þjóð, því hlutfall háskólamenntaðra er lægra hér en í þeim löndum sem við viljum bera okkur saman við. Þetta má vel lesa í ýmsum samanburðarskýrslum, en það sem kannski lýsir þessu best er að í því mikla atvinnuleysi sem við glímum nú við, þá stendur vöntun á vel menntuðu fólki vexti fyrirtækja fyrir þrifum. Sem þjóð, þá verðum við því að taka okkur þessa útskriftarnema og þá sem með þeim hafa unnið til fyrirmyndar og fjárfesta í framtíð okkar með fjárfestingu í háskólamenntun.
Það sem til þessa hefur verið lagt í háskóla landsins hefur skilað sér með eindæmum vel því mjög gott starf er unnið þrátt fyrir að framlög hins opinbera á hvern nemanda séu aðeins helmingur þess sem gerist í nágrannalöndunum. Þessu hefur verið stofnað í verulega hættu með þeim niðurskurði sem orðið hefur á undanförnum árum, en nú má það ekki bíða lengur að snúa blaðinu við og fjárfesta í háskólamenntun, því það er fjárfesting sem mun skila sér á skömmum tíma í auknum hagvexti og bættum lífskjörum fyrir okkur öll."
Í ræðu rektors kom ennfremur fram að Háskólinn í Reykjavík væri, þrátt fyrir ungan aldur, nú þegar orðinn stærsti tækni- og viðskiptaháskóli Íslands, en HR útskrifar tvo af hverjum þremur sem ljúka tæknimenntun á háskólastigi og um helming þeirra sem lýkur viðskiptamenntun. 470 nemendur voru brautskráðir frá skólanum en í máli rektors koma fram að í könnun sem gerð var á meðal útskriftarnema kom í ljós að meðal þeirra sem ætla sér strax að vinna þá séu yfir 80% komnir með starf fyrir útskrift.