Atvinnulífið og Evrópumálin
Fimm forstjórar tóku þátt í umræðum um atvinnulífið og Evrópumálin á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins. Það voru þeir Brynjólfur Bjarnason, forstjóri Granda, Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbanka Íslands, Hörður Arnarson, forstjóri Marel, Sigurður Einarsson, forstjóri Kaupþings og Þórður Friðjónsson, forstjóri Verðbréfaþings Íslands og formaður hnattvæðingarnefndar. Umræðunum stjórnaði Stefán Ólafsson, prófessor við Háskóla Íslands.
Tryggja hér betur gengisstöðugleika
Í umræðunum lýsti Halldór J. Kristjánsson þeirri skoðun sinni að
almennt séð væri starfsumhverfi íslenskra fyrirtækja vel tryggt með
EES-samningnum, en tók þó fram að hann teldi að vaxta- og
gjaldmiðilsmálin kölluðu á aðskilda umræðu. Hann sagði ýmislegt
benda til að erfitt gæti orðið að taka upp evru en jafnframt að
leita þyrfti leiða til að tryggja hér betur gengisstöðugleika.
Krónan ekki til eftir kannski 5-10 ár
Sigurður Einarsson vitnaði til nýlegs erindis framkvæmdastjóra
samtaka breskra banka og verðbréfafyrirtækja, þar sem hann lagði
fram nokkra kvarða til að mæla viðskipta- og efnahagslegt hagræði
af ESB-aðild. Sagði hann alla þá mælikvarða fremur jákvæða. Hins
vegar væru pólitískar spurningar um sjálfstæði og
sjávarútvegsstefnu allt annars eðlis. Sigurður sagði að íslenska
krónan yrði ekki til eftir kannski fimm til tíu ár. Það væri
óhjákvæmileg þróun, fyrirtæki væru í vaxandi mæli að færa lántökur
og annan kostnað yfir í aðra gjaldmiðla og nefndi hann sem dæmi að
Kaupþing bæri t.d. húsnæðiskostnað sinn núorðið í evrum.
Sjávarútvegsstefna ESB óásættanleg
Brynjólfur Bjarnason sagði það viðhorf ríkjandi innan
sjávarútvegsins að EES-samningurinn tryggi okkar hagsmuni vel.
Sjávarútvegsstefna ESB væri óásættanleg, sbr. grundvallaratriðið um
jafnan aðgang. Brynjólfur sagðist binda takmarkaðar vonir við
endurskoðun stefnunnar og sagðist ekki hafa mikla trú á að reglan
um hlutfallslegan stöðugleika ætti eftir að halda. Þá sagði hann
umgengni ESB um auðlindina hafa verið til skammar.
Fjárfesting hér mjög erfið
Hörður Arnarson sagði hnattvæðinguna vera ferla sem halda
myndi áfram af fullum krafti og að hann sæi fyrir sér að innan 5-10
ára yrðu tvö sterk hagkerfi í heiminum, dollarahagkerfi og
evruhagkerfi. Hugsanlega eitt til viðbótar í Asíu á grundvelli
japanska jensins. Hann lagði áherslu á að þeir sem tækju þátt í
þessu ferli næðu árangri og að ESB gegndi mikilvægu hlutverki í
þessum efnum. Aðspurður um erlendar fjárfestingar sagði hann
aðalatriðið gagnvart fjárfestum vera stöðugleika, hvort sem væri
gagnvart markaðnum eða samkeppnisaðilum. Vaxtastig og
gengissveiflur undanfarin misseri gerðu hins vegar fjárfestingu hér
mjög erfiða. Hann sagðist sjá marga galla við ESB, svo sem
ófullkomna sjávarútvegsstefnu, ósveigjanlegan vinnumarkað og miklar
reglubyrðar. Þessi mikli óstöðugleiki vægi hins vegar þyngra á
vogarskálunum að hans mati.
Hagstjórn við evruaðild
Þórður Friðjónsson sagði að með kyrrstöðu gagnvart Evrópuþróuninni
væri Ísland að fjarlægjast hnattvæðingar- og Evrópuþróunarferlin.
Hann vísaði, aðspurður um hagsveiflur og hagstjórn við evruaðild, í
rök skýrslu hnattvæðingarnefndar fyrir því að við ættum að hafa
alveg "þokkaleg" tækifæri til hagstjórnar sem ESB-ríki með evruna.
Vísaði hann þar til skynsamlegrar stefnu í ríkisfjármálum og til
sveigjanleika á íslenskum vinnumarkaði.