Átak til minnkunar reglubyrði í nágrannalöndunum
Stjórnvöld allra aðildarríkja OECD hafa á stefnuskrá sinni að draga úr reglubyrði fólks og fyrirtækja og auka gæði gildandi regluverks. Við setningu og endurskoðun reglna er áherslan lögð á atriði á borð við einfalda og samræmda framkvæmd, öflugt samráð við hagsmunaaðila og gerð vandaðs kostnaðarmats vegna nýrra reglna, þar sem kostnaður fyrirtækja og annarra er málið varðar er metinn og mat lagt á hvort þörfin á nýjum reglum réttlæti þennan kostnað. Nokkur þessara ríkja hafa tekið upp markvissar aðgerðir í þessu skyni, þeirra á meðal Noregur, Danmörk og Svíþjóð.
Strax felldar niður 300 reglugerðir
Árið 1999 var öllum norskum ráðuneytum gert að gera áætlun um
endurskoðun og einföldun á opinberu regluverki. Strax árið 2000
voru um 300 reglugerðir felldar úr gildi, oft eftir að tvær eða
fleiri höfðu verið sameinaðar í eina. Verkefnið hefur haldið áfram
og í sumum tilfellum hafa yfir 50 reglugerðir verið endurskoðaðar
og sameinaðar í eina. Frá árinu 1998 hefur norska iðnaðar- og
viðskiptaráðuneytið einnig mælt þann fjölda eyðublaða sem fyrirtæki
þurfa að fylla út og út frá því lagt mat á þann tíma sem fyrirtæki
þurfa að verja til upplýsingagjafar til hins opinbera. Samkvæmt
mælingunni minnkaði þessi tími að meðaltali um 7% á árunum 1998 til
2001.
Áætlun um "einfaldari Noreg"
Í október 2002 lagði svo núverandi ríkisstjórn fram aðgerðaáætlunina
"einfaldari Noreg" þar sem minnkun á reglubyrði atvinnulífsins
er sett fram sem eitt meginmarkmið ríkisstjórnarinnar. Kynntur er
fjöldi tillagna til úrbóta og komið á fót virku samráði við
hagsmunasamtök atvinnulífsins í sérstöku ráðgjafaráði, auk þess sem
boðuð er endurskoðuð og ítarlegri áætlun að ári.
Danmörk: 198 tillögur til minnkunar
reglubyrði
Danska ríkisstjórnin hefur sett fram áætlun um að einfalda lög og
reglur, einfalda opinbera stjórnsýslu, afnema óþarfa reglur og
minnka reglubyrði fólks og fyrirtækja. Í ítarlegri aðgerðaáætlun
eru lagðar fram 198 tillögur í þessu skyni. Stefnan er m.a. sú að
reglubyrði fyrirtækja minnki ár frá ári og að árið 2010 hafi hún
minnkað um 25% frá því sem nú er.
Meðal þeirra breytinga sem fyrirhugaðar eru fyrir fyrirtæki má nefna einföldun á innheimtu virðisaukaskatts, innheimtu ýmissa opinberra gjalda og gerð ársreikninga. Þá verða ýmis vottorð einfölduð og jafnvel afnumin í einstökum tilfellum og sama gildir um ýmiss konar upplýsingaskyldu í tengslum við t.d. umhverfismál. Innan stofnunar á vegum viðskiptaráðuneytisins hefur sérstök deild verið sett á fót til að hafa umsjón með þessari vinnu.
SimpLex í Svíþjóð
Í Svíþjóð hefur verið sett upp
sérstök stjórnsýslu-eining sem nefnist SimpLex og heyrir undir
viðskiptaráðuneytið. Henni er ætlað að hafa eftirlit með því að
nýjar reglur frá hinu opinbera séu einfaldar í framkvæmd, sem hún
fær til skoðunar á frumstigum, og aðstoða við gerð kostnaðarmats.
Þá geta fyrirtæki haft samband við SimpLex og komið á framfæri
ábendingum um svið þar sem draga mætti úr reglubyrði. Loks hefur
SimpLex umsjón með fræðslu fyrir opinbera embættismenn þar sem
áhersla er lögð á einföldun á framkvæmd laga og reglna. Á fyrsta
starfsári sínu hefur SimpLex að meðaltali skoðað eitt til tvö mál á
dag, látið fara fram kostnaðarmat á 105 tillögum að nýjum lögum eða
reglum og 26 tillögur að lagafrumvörpum eða reglugerðum hafa verið
dregnar til baka eða þeim breytt til einföldunar að tilmælum
SimpLex. Loks hafa um 300 embættismenn sótt námskeið á vegum
SimpLex.