Ársskýrsla SA 2013-2014 (1)
Ársskýrsla Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2013-2014 er komin út. Þar er að finna greinargott yfirlit yfir starf samtakanna síðasta ár. Þar er m.a. birt nýtt skipurit Samtaka atvinnulífsins og greint frá gildum samtakanna: FRUMKVÆÐI - ÁBYRGÐ - ÁRANGUR.
Í Ársskýrslu SA er fjallað um þróun efnahagsmála og horfurnar framundan, breytt vinnubrögð við gerð kjarasamninga,áskoranir í menntamálum og starfsskilyrði atvinnulífsins í víðum skilningi.
Ársskýrslan er nú eingöngu gefin út rafræn en hana má nálgast hér að neðan.
