Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins á morgun
Ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins fer fram 20. nóvember næstkomandi á Grand Hótel Reykjavík kl. 14:00 til 17:00. Ný leiðtogahugsun og ráðgjafasálfræði verður þar í fyrirrúmi. Tveir erlendir fyrirlesarar munu flytja erindi, Ingegerd Green, fyrirtækjaráðgjafi og David L. Blustein, sérfræðingur í ráðgjafasálfræði.
Dagskrá:
14:00 Setning
Guðrún Eyjólfsdóttir, formaður stjórnar FA
14:10 Náms- og starfsráðgjöf á breyttum tímum -
Atvinna, hnattvæðing og ný staða hagkerfisins
Dr. David Blustein, ráðgjafasálfræðingur frá Boston
15:00 Rödd notanda í raunfærnimati og námsráðgjöf
Egill Þórarinsson og Svanur Þ. Brandsson
15:15 Hlé - Kaffi
15:40 Ný leiðtogahugsun til samkeppnishæfni, sjálfbærni og velferðar
Ingigerd Green, ráðgjafi frá Gautaborg
16:30 Fyrirmynd í námi fullorðinna
Afhending viðurkenninga
17:00 Slit
Fundarstjóri: Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ
Nánari upplýsingar um erlendu fyrirlesarana á vef FA
Þátttaka tilkynnist með tölvupósti á: lena@frae.is