Ársfundur atvinnulífsins 2018 - bein útsending

Bein útsending frá Ársfundi atvinnulífsins hefst kl. 13.20 frá Hörpu með léttri upphitun þar sem gestir og gangandi verða teknir tali. Dagskrá hefst stundvíslega kl. 14. Skráningu á fundinn er lokið enda hvert sæti í Hörpu skipað.

Framfarir í hundrað ár er yfirskrift Ársfundar atvinnulífsins 2018 en á árinu fagna landsmenn því að heil öld er frá því Ísland varð frjálst og fullvalda ríki þann 1. desember 1918. Á hundrað árum hefur öflugt íslenskt atvinnulíf lagt grunn að góðum lífskjörum hér á landi. 

Fundurinn fer fram mánudaginn 16. apríl í Hörpu kl. 14-15.30 og er öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku hér að neðan.

Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir ávarpa fundinn ásamt dr. Eamonn Butler framkvæmdastjóra, Adam Smith-stofnunarinnar í London.


Boðið verður upp á tímaflakk á fundinum hópur stjórnenda fer í skemmtilegt ferðalag um söguna, það sem hefur áunnist á hundrað árum og framtíðina.

Þátt taka Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Ásthildur Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel, Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, Orri Hauksson, forstjóri Símans, Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Anna Svava Knútsdóttir, eigandi ísbúðarinnar Valdís ásamt Stefáni Pálssyni sagnfræðingi.

Halldór Baldursson mun teikna skopmynd morgundagsins á staðnum en fundinum stýrir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.

Að loknum fundi fer fram netagerð með tónlist og tilheyrandi. Fundurinn er hluti af 100 ára dagskrá afmælisárs fullveldisins.