Allt fyrir alla

Fljótt skipast veður í lofti. Nýverið kom fram sú hugmynd að endurskoða fjárhæð persónuafsláttar til samræmis við launavísitölu frá árinu 1990. Það þýðir að skattleysismörkin hækka úr 150 þús. kr. í 320 þús. kr. á mánuði. Niðurstaðan er sú að kostnaður við þá aðgerð næmi ríflega 130 milljörðum króna á ári. Aðgerðin væri feikilega dýr og misráðin og hefði grundvallaráhrif á hvata til vinnu og þar með neikvæð áhrif á efnahagslífið allt.

Gildrur að varast
Það er mikilvægt að stöðug umræða og endurskoðun sé í gangi á íslensku skattkerfi. Sérstaklega fagnar undirritaður öllum tillögum um lækkun álagna á landsmenn. Ekki síst í ljósi þess að skattheimta á Íslandi ein sú mesta meðal þróaðra ríkja. Óraunhæfar tillögur í þá veru eru þó ekki til þess fallnar að vinna málstaðnum brautargengi. Það er erfitt að bera saman persónuafslátt á milli ólíkra kerfa. Skattleysismörk eru til að mynda þau sömu hvort sem þau eru 25 þúsund krónur í  kerfi 25% tekjuskatts eða 50 þúsund krónur í kerfi 50% tekjuskatts. Það eru því margar gildrur að varast í umræðu um skattleysismörk og persónuafslátt.

Heildarkostnaður aðgerðinnar væri metinn 130 milljarðar króna á ári. Til samanburðar er heildarframlag til heilbrigðismála um 190 milljarðar á ári.

Trúverðugleiki?
Gott dæmi er nýleg tillaga um að persónuafsláttur verði endurskoðaður til samræmis við þróun launavísitölu frá árinu 1990. Í fyrstu hljómar þetta sem yfirveguð hugmynd. En við nánari skoðun sést að tillagan er óraunhæf.

Tillagan myndi nánast þurrka út allar tekjur tekjur ríkissjóðs í gegnum tekjuskatt einstaklinga.

Persónuafsláttur er 52.907 kr. á mánuði en uppreiknaður m.v. launavísitölu árið 1990 verður hann 112.881 kr. Við það lækka mánaðarlega skattgreiðslur hvers einstaklings, sem fullnýtir afsláttinn, um tæpar 60 þúsund krónur burt séð frá því hvar hann er í tekjudreifingu. Skattleysismörk myndu þannig hækka úr tæpum 150 þús. kr.  í tæp 320 þús. kr. á mánuði m.v. 4% framlag launþega í lífeyrissjóð.

Heildarkostnaður aðgerðinnar væri metinn 130 milljarðar króna á ári. Til samanburðar er heildarframlag til heilbrigðismála um 190 ma. kr. á ári.

Smáatriði skipta máli
Ekki dugar að horfa til fjölda framteljenda og margfalda með hækkun persónuafsláttar. Það væri ofmat þar sem hluti framteljenda nýtir ekki persónuafsláttinn til fulls. Fjöldi þessara framteljenda var 264.898 en þar af voru 49.253 með tekjur undir núverandi skattleysismörkum sem eru 149.192 krónur á mánuði m.v. 4% framlag launþega í lífeyrissjóð. Þeir sem voru með tekjur á milli „nýju“ skattleysismarkanna og þeirra „gömlu“ voru 78.564 og voru meðaltekjur þeirra 241.314 kr. Kostnaðurinn ríkissjóðs vegna hærri persónuafsláttar þessara framteljenda hefði verið 34,2 ma.kr. Það er þá kostnaður af þeim sem hætta að greiða skatt í umræddri tillögu.  Fjöldi þeirra sem voru yfir „nýju“ mörkunum var 137.081 og kostnaðurinn vegna þeirra væri 98,7 ma.kr. Kostnaður ríkissjóðs af því að endurskoða persónuafslátt til samræmis við launavísitölu frá árinu 1990 væri því að minnsta kosti 133 ma.kr. og af þeirri fjárhæð færu 74% til þeirra tekjuhæstu.

Vönduð vinnubrögð
Við eigum að vera kröfuhörð þegar kemur að umræðu um skattkerfið. Tillagan um launavísitölutengdan persónuafslátt frá árinu 1990 myndi nánast þurrka út allar tekjur tekjur ríkissjóðs í gegnum tekjuskatt einstaklinga. Í fyrra námu þær ríflega 150 ma.kr. en yrðu m.v. breytinguna um 20 ma.kr. Tekjur ríkissjóðs myndu þannig á augabragði dragast saman um 130 milljarða króna á ári.

Ef ætlunin er að fækka þeim í einu vetfangi sem taka þátt í að greiða skatta verður það einungis gert með þeim hætti að velta þeim byrðum á aðra nema samsvarandi tekjusamdráttur komi á móti. Sú aðgerð myndi þýða verulega hækkun grunnskattprósentu og aukinheldur draga um leið kröftuglega úr hvata til vinnu fyrir þau 137 þúsund framteljenda sem fá þau „forréttindi“ að borga hærri skatta með tilheyrandi neikvæðri bjögun á á framleiðslu og lífskjör í landinu. Þá er betur heima setið en af stað farið. 

Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins.

Greinin birtist í Markaðnum 19. september 2017

Sjá einnig frétt Vísis:

Tillögur VR myndu kosta ríkissjóð 130 milljarða