Aldur hefur ekki áhrif á atvinnumöguleika
Möguleikar atvinnulausra á að fá starf hafa ekkert með aldur
þeirra að gera. Meðal þess fólks sem danskar atvinnumiðlanir hafa
vísað í atvinnuviðtöl hafa eldri aldurshóparnir komið svipað út og
aðrir, að þeim allra yngstu undanskildum. Þetta kemur fram í
sérstakri athugun sem danska vinnumálastofnunin gerði að beiðni
samtaka atvinnulífsins í Danmörku. Samkvæmt athuguninni fær u.þ.b.
einn af hverjum þremur atvinnulausum á aldrinum 50-59 ára starfið,
fari þeir í atvinnuviðtal. Einungis í allra yngsta hópnum, yngri en
25 ára, er hlutfallið hærra. Sjá nánar í fréttabréfi samtaka
atvinnulífsins í Danmörku.