Ákvörðun Seðlabankans órökstudd og skaðleg
Gjaldeyrishöft verða ekki afnumin næsta hálfa árið samkvæmt
ákvörðun Seðlabanka Íslands. Samtök atvinnulífsins segja
ákvörðunina skaðlega og brýnt að losað verði um höftin hið fyrsta.
Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri SA, segir í samtali
við Vísi að ákvörðunin sé á engan hátt rökstudd. Gjaldeyrishöftin
séu ekki til neins gagns.
Í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að skilyrði til að afnema
gjaldeyrishöft séu ekki til staðar og því verði þau ekki afnumin að
sinni. Samkvæmt reglum um gjaldeyrismál átti að endurskoða þær
fyrir 1. mars og á næsta endurskoðun að fara fram eigi síðar en 1.
september.
Í samtali við Vísi segir Hannes: "Almennt höfum við hjá Samtökum atvinnulífsins verið andsnúnir þessum gjaldeyrishömlum og höfðum vonast til þess að losað yrði um þær."
Sjá nánar: