Ákvörðun Seðlabankans hænufet í rétta átt
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins,
segir í samtali við Vísi ákvörðun peningastefnunefndar Seðlabankans
að lækka stýrivexti um 0,5 prósentur vera hænufet í rétta átt en
breyti ekki miklu varðandi fjármagnskostnað og möguleika lítilla og
meðalstórra fyrirtækja til uppbyggingar. Með ákvörðun
peningastefnunefndar bankans lækkuðu stýrivextir úr 10% í 9,5%.
Vilhjálmur segist hafa viljað sjá meiri lækkun. Ekki séu nein rök
fyrir því að halda vöxtum svona háum.
"Þetta er afar lítið skref. Ég hefði viljað smá meiri dirfsku því
það skiptir mjög miklu máli að koma fjárfestingum í atvinnulífinu í
gang. Þetta verður ekki til þess," segir Vilhjálmur á vef
Vísis.
Einnig var rætt við Vilhjálm í hádegisfréttum RÚV. Þar lagði
hann mikla áherslu á að frekari lækkun vaxta væri nauðsynleg fyrir
lítil og meðalstór fyrirtæki svo þau geti tekið að fjárfesta á
nýjan leik. "Það þarf verulega vaxtalækkun til þess að
fyrirtæki fari almennt að hreyfa sig og fjárfesta og þá er ég að
tala um þessi litlu og meðalstóru fyrirtæki, ekki þessi stóru
verkefni, því að við þurfum þessar fjárfestingar frá fyrirtækjunum,
sérstaklega í útflutningsgreinum, til þess að byggja upp ný störf
og ná til baka okkar lífskjörum."
Sjá
nánar frétt Vísis
Sjá einnig: