Áhersla á aðhald hins opinbera
Í ályktun aðalfundar Samtaka fiskvinnslustöðva er m.a. fjallað um misjafna rekstrarstöðu vinnslugreina í sjávarútvegi, hafnagjöld, hvalveiðar og hvernig gengishækkun krónunnar hefur leitt til minnkandi framlegðar fyrirtækja.
Áhersla á aðhald hins opinbera
Aðalfundurinn fagnar þeirri ákvörðun ríkisstjómarinnar sem birtist
í tæplega sjö milljaðra króna tekjuafgangi ríkissjóðs í
fjárlagafrumvarpi fyrir 2004. Miklu skiptir að ríki og sveitarfélög
haldi að sér höndum í framkvæmdum og gæti ítrasta aðhalds í rekstri
á fyrirsjánlegum þenslutímum. Varðveita verður stöðugleikann í
íslensku efnahagslífi og þar skiptir miklu að aðhaldasemi sé gætt í
opinberum útgjöldum. Við þessar aðstæður og í ljósi sterkrar stöðu
krónunnar skiptir gríðarlegu máli fyrir útflutningsgreinar að
verðbólga og vaxtakostnaður hér á landi verði alls ekki meiri en í
okkar helstu viðskipta- og markaðslöndum. Gengishækkun íslensku
krónunnar á undanförnum misserum hefur þegar leitt til lakari
samkeppnisstöðu íslenskra útflutningsfyrirtækja á erlendum
mörkuðum.
Aðalfundurinn mótmælir öllum hugmyndum stjórnvalda sem miða að því að raska stöðugleika við úthlutun aflaheimilda.
Sjá ályktun
fundarins í heild á vef Samtaka fiskvinnslustöðva.