Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 20. maí
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins verður haldinn miðvikudaginn 20. maí klukkan 12 og verður hann á rafrænu formi. Tillaga kjörstjórnar um stjórn SA fyrir 2020-2021 um tuttugu stjórnarmenn fyrir komandi starfsár liggur fyrir og byggir á tillögum aðildarsamtaka SA.
Tillaga kjörstjórnar hefur legið frammi á skrifstofu SA en félagsmenn geta einnig óskað eftir að fá hana senda.
Samkvæmt samþykktum SA rennur framboðsfrestur til stjórnar út sjö sólarhringum fyrir upphaf aðalfundar, sem er á morgun þann 13. maí kl. 12.