Aðalfundur SA hefst kl. 13 - opin dagskrá kl. 14
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2013 fer fram í dag miðvikudaginn 6. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra flytja erindi á opinni dagskrá fundarins. Þá mun fjölbreyttur hópur stjórnenda fjalla um leiðir til að skapa samstöðu um fleiri og betri störf á Íslandi á næstu árum og bæta lífskjör landsmanna. Mikill áhugi er á fundinum og stefnir í fullt hús.
Venjuleg aðalfundarstörf hefjast kl. 13 í sal H á annarri hæð en opin dagskrá hefst kl. 14 í aðalsal Nordica undir yfirskriftinni Samstöðuleiðin: Fleiri störf - betri störf.
Eftirfarandi aðilar munu stíga á stokk auk Vilmundar Jósefssonar og Þorsteins Pálssonar:
Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss
Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor
Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi
Georg Gísli Andersen, framkvæmdastjóri Valafells
Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital
Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits
Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans og stjórnarformaður Festu.
Í lok fundar kl. 16 mun nýr formaður Samtaka atvinnulífsins flytja
lokaorð og slíta fundi.
Vilmundur Jósefsson, núverandi formaður Samtaka
atvinnulífsins hefur ákveðið að hætta sem formaður SA og stendur
kosning formanns nú yfir meðal félagsmanna SA. Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hefur gefið kost á
sér sem nýr formaður Samtaka atvinnulífsins.
Fundarstjóri er Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA.
