Aðalfundur SA 7. maí
Samtök atvinnulífsins halda aðalfund sinn 7. maí. Auk ávarpa
formanns SA og Davíðs Oddssonar forsætisráðherra verður kynnt ný
skýrsla SA um samkeppnislög. Þá verður flutt erindi um Evrópustefnu
norsku samtaka atvinnulífsins og forsvarsmenn fyrirtækja ræða um
atvinnulífið og Evrópumálin. Sjá
nánar.