67% félagsmanna SI vilja evru
Könnun Gallup meðal almennings var byggð á 1200 manna
slembiúrtaki þar sem svarhlutfallið var 68,3%. Spurt var: "Ertu
fylgjandi eða andvígur aðild Íslands að Evrópusambandinu?" 49,9%
svarenda sögðust fylgjandi ESB-aðild, 37% sögðust andvíg en 13,1%
tóku ekki afstöðu. Sama spurning var lögð fyrir lagskipt
tilviljunarúrtak úr félagaskrá Samtaka iðnaðarins, samtals 500
félagsmenn og var svarhlutfallið 79,8%. 57,8% félagsmanna SI sögðu
já, 30% sögðu nei og 12,2% tóku ekki afstöðu. Gallup spurði líka:
"Ertu hlynntur því eða andvígur að taka upp evru sem gjaldmiðil á
Íslandi í stað krónunnar?" 44% almennings sögðu já, 45% sögðu nei
en 11% tóku ekki afstöðu. Hins vegar sögðu 67% félagsmanna SI já,
30% sögðu nei og einungis 3% tóku ekki afstöðu. Niðurstöður
könnunarinnar voru kynntar á ráðstefnu SI um ESB og
evruaðild. Sjá nánar um
ráðstefnuna og
niðurstöður könnunarinnar á heimasíðu Samtaka iðnaðarins.