60 milljarða ávinningur á ári
Ef það tekst að fjölga störfum um 15 þúsund á næstu árum mun fjárhagslegur ávinningur Íslendinga nema nálægt 60 milljörðum króna á hverju ári. Það er meira en framlög ríkisins á árinu 2013 til allra framhaldsskóla, háskóla og LÍN. Það er því til mikils að vinna en tækifærin eru svo sannarlega til staðar.
Á næstu árum þarf að skapa a.m.k. 10 þúsund ný störf til að koma
á fullri atvinnu á ný og mæta vaxandi fjölda fólks á vinnumarkaði.
Starfandi fólki fækkaði um 10 þúsund milli áranna 2008 og 2012 og
um 1.500 manns bætast við vinnumarkaðinn á hverju ári. Til að bjóða
hluta þeirra 9.000 íbúa einnig vinnu sem fluttu brott af landinu
árunum 2009-2012 og hafa ekki komið aftur þurfum við enn fleiri
störf.
Þetta kemur m.a. fram í stuttu myndbandi sem sýnt var á aðalfundi
SA 2013 og horfa má á hér að
neðan.
Lítill hagvöxtur á Íslandi er mikið áhyggjuefni en á meðfylgjandi mynd má sjá fjölgun starfa á Íslandi m.v. mismunandi hagvaxtarforsendur og vöxt vinnuafls.
Verði hagvöxtur að jafnaði 2,5% á ári mun full atvinna ekki nást í fyrirsjáanlegri framtíð. Verði hagvöxtur að jafnaði 3,5% á ári má gera ráð fyrir því að full atvinna komist á eftir tæpan áratug. Til að minnka atvinnuleysið hratt eins og hægt er að gera þarf því verulega auknar atvinnuvegafjárfestingar og hagvöxt umfram 3,5%. Fyrir ríkissjóð í fjárþörf er besta ráðið til að auka tekjur sínar að fjölga skattgreiðendum.
Tengt efni:

