50.000 kr. eingreiðsla til launafólks
Verði nýir kjarasamningar samþykktir fær launafólk sem samningarnir ná til sérstaka eingreiðslu kr. 50.000. Eingreiðslan miðast við fullt starf á tímabilinu 1. mars til 31. maí og er hugsuð sem uppbót fyrir þá frestun sem varð á gildistöku nýrra kjarasamninga. Á vinnumarkaðsvef SA geta aðildarfyrirtæki SA nálgast ítarlegar upplýsingar um eingreiðsluna vegna launaútreikninga.
Eingreiðslan nær til launamanna sem falla undir almenna kjarasamninga eftirtalinna félaga og sambanda:
-
Flóabandalagið (Efling, Hlíf, VSFK)
-
Rafiðnaðarsamband Íslands
-
Samiðn
-
Starfsgreinasamband Íslands (einnig Akranes, Húsavík og Þórshöfn)
-
VR / LÍV
-
Félag bókagerðarmanna
-
Matvís
-
Mjólkurfræðingafélag Íslands
-
VM félag vélstjóra og málmtæknimanna
-
Samtök starfsmanna fjármálafyrirtækja
-
Verkstjórasamband Íslands
Sjá nánar á Vinnumarkaðsvef SA
Nálgast má lykilorð á skrifstofu SA í síma 5910000 eða með því að senda póst á mottaka@sa.is